Mánudagur - 8.2 2010 - 17:24 - Ummæli ()

Pólskur eltihrellir handtekinn fyrir að sitja um Keiru Knightley: Sá sjötti í röð eltihrella leikkonunnar

Áhugi hins 41 árs gamla Marek Daniluk á hinni 24 ára gömlu bresku leikkonu Keiru Knightley fór svo illa úr böndunum að Marek var handtekinn á dögunum.

keira-knightley-in-the-mi-001.jpgMarek þessi mun vera sjötti í röð eltihrella þeirra er hafa herjað á Keiru um dagana en hann sat fyrir henni fyrir utan West End’s Comedy Theatre í London í gær.

Þar leikur Keira í uppsetningu á Mannhataranum eftir Moliere (The Misanthrope).

Hinn illa haldni Marek þarf að mæta fyrir rétti þann 4.júní nk en þangað til mun hann að sitja í gæsluvarðhaldi.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar