Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrú Vinstri grænna, sem lenti í öðru sæti í forvali flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík, hefur kært utankjörfundaratkvæðagreiðsluna.
Þorleifur skipaði þriðja sæti á lista VG í borgarstjórnarkosningunum 2006, en hefur undanfarið verið oddviti flokksins í borgarstjórn, þ.e. eftir að tveir efstu menn á listanum 2006, þau Svandís Svavarsdóttir og Árni Þór Sigurðsson, settust á Alþingi og drógu sig í hlé frá borgarstjórn. Sóley Tómasdóttir skipaði fjórða sætið í síðustu kosningum, en varð síðar borgarfulltrúi og hefur undanfarið skiptað annað sæti listans.
Uppröðun á lista verður óbreytt
Í forvalinu í fyrradag velti Sóley Þorleifi úr sessi og vann kosningu um efsta sætið. Hlaut hún til þess 439 atkvæði, en Þorleifur hlaut 493 atkvæði í 1.-2. sæti. Ekki var gefið upp hve mörg atkvæði Þorleifur fékk í fyrsta sætið eingöngu, en Eyjan hefur heimildir fyrir því að munurinn á þeim tveimur hafi aðeins verið um 40 atkvæði. Utankjörfundaratkvæði voru 84 og því má fljótt á litið ætla að niðurstaðan gæti breyst ef utankjörfundur verður dæmdur ógildur.
Hins vegar segir Stefán Pálsson, formaður kjörstjórnar í samtali við Eyjuna, að skipting utankjörfundaratkvæða á milli Sóleyjar og Þorleifs hafi verið nokkuð jöfn og því sé ljóst að endanleg niðurstaða muni aldrei breytast, hvort sem utankjörfundur verður dæmdur ógildur eða ekki. Þá segir hann að Þorleifur sé fyllilega upplýstur um þetta og geri sér grein fyrir að röð á lista verði óbreytt. Hann hafi þó viljað kæra kosninguna af prinsippástæðum, til að fá úr ákveðnum atriðum skorið, m.a. er varðar upplýsingagjöf og fleira.
Frambjóðendur í forvali VG hafa tveggja sólarhringa frest til að kæra kosninguna og rennur hann út klukkan tíu í kvöld.
Ekki hefur náðst í Þorleif í dag, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
