Mánudagur - 8.2 2010 - 08:40 - Ummæli ()

Tryggvi þáði laun og hlunnindi frá Askar Capital meðan hann var efnahagsráðgjafi forsætisráðherra

tryggvithorherbertsson.gifTryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fékk ríflega 16 milljónir króna frá Askar Capital meðan hann gegndi störfum sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar árið 2008. Að auki var hann á bíl frá Askar og þáði fleiri hlunnindi.

Þetta er fullyrt á vefmiðlinum Pressunni sem segist hafa fyrir þessu öruggar heimildir.

Fram kemur að  Tryggvi var bankastjóri Askar Capital frá stofnun árið 2007 en sumarið 2008 tilkynnti hann að hann færi í hálfs árs leyfi frá bankanum eftir að Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, óskaði eftir því að hann kæmi til starfa í forsætisráðuneytinu sem efnahagsráðgjafi.  Í samtali við fjölmiðla sagði Tryggvi Þór þá að hann yrði ekki á launum hjá Askar Capital meðan hann sinnti starfi sínu og því yrðu engir hagsmunaárekstrar.

Öruggar heimildir Pressunnar herma hins vegar að hann hafi fengið áfram mánaðarlegar greiðslur frá Askar Capital eftir að hann fór í leyfi og meðan hann gegndi stöðu efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar. Greiðslurnar voru skilgreindar sem bónus fyrir fyrri helming ársins 2008. Rekstur Askar Capital var hins vegar mjög erfiður á árinu 2008 og nam tap af starfseminni samkvæmt tilkynningu til Kauphallar 12,4 milljörðum eftir skatta.

Pressan segir að Tryggvi hafi auk þess verið á bifreið sem Askar Capital greiddi fyrir og jafnframt hafi hann þegið ýmis önnur hlunnindi frá bankanum.

Þá kemur fram að Tryggvi þáði laun frá forsætisráðuneytinu sem voru ígildi launa aðstoðarmanna en þau voru á þeim tíma milli 7 og 800.000 krónur.  Hann lét svo af störfum sem efnahagsráðgjafi í október 2008.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar