Þriðjudagur - 9.2 2010 - 08:34 - Ummæli ()

Áhrifamenn í Framsókn vilja breyta Högum í samvinnufélag. Stuðningshópur á Facebook

hagkaupsverslun.jpgTveir áhrifamenn í Framsóknarflokknum, Gestur Guðjónsson og Hallur Magnússon, vilja að verslunarkeðjunni Högum verði breytt í lýðræðislegt samvinnufélag neytenda. Hafa þeir stofnað um þetta samtök á samskiptavefnum Facebook.

Hugmynd þeirra Gests og Halls er að félagsmenn í hinu nýja samvinnufélagi, Högum svf, kæmu inn með stofnfé, að lágmarki t.d. 50.000 og mynduðu þannig sameiginlega eiginfjárstofn fyrirtækisins. Þeir sem vildu leggja meira inn, mættu það, en hver félagsmaður hefði sitt atkvæði.

Í morgun höfðu 82 gerst áhangendur hugmyndarinnar á Facebook, þar á meðal Birkir Jón Jónsson þingmaður flokksins, Magnús Stefánsson fyrrum ráðherra flokksins og Gísli Tryggvason talsmaður neytenda og frambjóðandi í oddvitasæti flokksins í Kópavogi.

Gestur Guðjónsson fjallaði um hugmyndina á bloggsíðu sinni í gær.  Hann lagði til að enginn einn þátttakandi fengi meira en eitt atkvæði á félagsfundi, óháð stofnfjárstærð, þannig að blokkamyndun væri nánast óhugsandi og beint lýðræði fengi að ráða, „öfugt á við gamla Sambandsveldið, sem byggðist upp á margföldu fulltrúalýðræði, þar sem hver silkihúfan kom upp af annarri,“ eins og hann kemst að orði.

„Þannig færi stærsta smásöluverslunarfyrirtæki landsins í félagslega eigu, sem yrði öðrum aðilum á markaði, sem fyrir eru og væntanlega munu koma til, góð viðspyrna, enda yrði félagið ekki rekið með ofurhagnað í huga, heldur hagsmuni neytenda og félagsmanna í huga. Þessi leið fæli í sér betri tíð með blóm í haga,“ skrifar Gestur Guðjónsson.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar