Hagar eru á meðal fjárfestingarkosta sem Framtakssjóður Íslands, fjárfestingarsjóður 16 lífeyrissjóða, íhugar að fjárfesta í.
Þetta segir Ágúst Einarsson, stjórnarformaður sjóðsins, við Morgunblaðið í dag.
Þá segir Ágúst öruggt að búið verði að fjárfesta í nokkrum verkefnum fyrir vorið. Er miðað við að eignarhlutur sjóðsins verði á bilinu 20% til 60%.
„Við ætlum ekki að vera einhver viðbótarfjárfestir heldur ætlum að hafa áhrif til góðs fyrir fyrirtæki og við útilokum ekki að kaupa meirihluta í fyrirtækjum eða verða þannig ráðandi aðilar að rödd okkar skipti máli, en munum þó leita samstarfs við aðra,“ segir Ágúst.
