Íslensku bókmenntaverðlaunin 2009 verða afhent af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, á Bessastöðum síðdegis á morgun. Tvenn verðlaun verða veitt, í flokki fræðirita og bóka almenns efnis og fagurbókmennta. Verðlaunaupphæðin er í báðum tilvikum 750 þúsund krónur.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Félagi íslenskra bókaútgefenda.
Dómnefnd skipuð formönnum tilnefningarnefnda beggja flokka verðlaunanna og formanni skipuðum af forseta Íslands hefur valið tvo verðlaunahafa. Annars vegar úr flokki fræðibóka og bóka almenns efnis, hins vegar úr flokki fagurbókmennta. Lokadómnefnd skipuðu: Guðrún Kvaran – skipuð af forseta Íslands. Felix Bergsson – formaður tilnefningarnefndar fagurbókmennta og Védís Skarphéðinsdóttir – formaður tilnefninganefndar fræðibóka og bóka almenns efnis
Eftirfarandi 10 bækur voru tilnefndar til verðlaunanna:
Fræðibækur og bækur almenns efnis
Á mannamáli. Ofbeldi á Íslandi – Þórdís Elva Þorvaldsdóttir. JPV útgáfa.
Jón Leifs – Líf í tónum. Árni Heimir Ingólfsson. Mál og menning.
Jöklar á Íslandi. Helgi Björnsson. Opna.
Mynd af Ragnari í Smára. Jón Karl Helgason. Bjartur.
Svavar Guðnason. Kristín G. Guðnadóttir. Bjartur.
Fagurbókmenntir
Auður. Vilborg Davíðsdóttir. Mál og menning
Bankster. Guðmundur Óskarsson. Ormstunga
Enn er morgunn. Böðvar Guðmundsson. Uppheimar
Góði elskhuginn. Steinunn Sigurðardóttir. Bjartur
Milli trjánna. Gyrðir Elíasson. Uppheimar
Íslensku bókmenntaverðlaununum var komið á fót árið 1989 í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bókaútgefenda sem stofnað var í Reykjavík í janúar 1889. Fyrsta árið var verðlaununum ekki skipt í flokka en tilnefndar alls 10 bækur. Fyrsti verðlaunahafinn var ljóðskáldið Stefán Hörður Grímsson sem hlaut verðlaunin fyrir bókina Yfir heiðan morgun. Verðlaunaféð var ein milljón króna. Árið eftir var tilhögun verðlaunanna breytt þannig að tilnefndar bækur skiptust í tvo flokka, flokk skáldverka og flokk fræðibóka/bóka almenns efnis og hefur verið svo síðan. Tilnefnt er í upphafi desember hver ár og verðlaunin síðan veitt síðla janúar eða í upphafi febrúar. Óháðar tilnefninganefndir, skipaðar þremur einstaklingum, velja þær fimm bækur í hvorum flokknum sem helst þykja skara fram úr. Lokaval er í höndum formanna nefndanna tveggja og forsetaskipaðs dómnefndarformanns og velja þeir tvær bækur úr sitt hvorum flokki sem hljóta verðlaunin. Forseti Íslands afhendir verðlaunin á Bessastöðum við hátíðlega athöfn. Allir sem gefa út bækur á Íslandi geta lagt fram bækur til verðlaunanna, hvort sem þeir eru í Félagi bókaútgefenda eða ekki, og greiða hóflegt gjald. Verðlaunaupphæðin er kr. 750.000 fyrir hvorn verðlaunahafa
