Þriðjudagur - 9.2 2010 - 16:52 - Ummæli ()

Ósáttir við ásakanir ráðherra um siðlausa sjóræningjastarfsemi

kredialan.jpgFramkvæmdastjóri Kredia er ósáttur við ásakanir Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra, um að fyrirtækið stundi okurlánastarfsemi. Bent hefur verið á að fyrirtækið innheimti hundruð eða þúsund prósenta vexti af smálánum sínum.

Árni Páll gagnrýndi harðlega starfsemi fyrirtækja sem veita smálán gegnum netið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Hann sagði að lán til ungmenna á þúsund prósenta vöxtum væru siðlaus sjóræningjastarfsemi. Jafnframt hyggst ráðherrann beita sér fyrir lagasetningu til að takmarka starfsemi fyrirtækja eins og Kredia.

Leifur A. Haraldsson, framkvæmdastjóri Kredia, segist ekki geta tekið undir orð ráðherrans. „Við erum í atvinnurekstri sem felst í því að miðla fjármagn gegnum tölvukerfi. Við tökum fyrir það okkar kostnað til að hafa upp í laun og annað mál,“ er haft eftir Leifi á Vísi í dag.

Aðspurður um fullyrðingar ráðherrans að fyrirtækið leggi á þúsundir prósenta í vexti segir Leifur:„Hann er væntanlega að vitna til þess að þessi upphæð og kostnaður sem við erum að taka fyrir lánin er umreiknuð í ársvexti þá reiknast það upp í sex hundruð prósent samkvæmt umfjöllun sem hefur verið. Hann er væntanlega að tala um það.“

Fyrirtæki Leifs hefur verið gagnrýnt fyrir að höfða sérstaklega til ungs fólks, en þriðjungur allra sem nýta sér þjónustuna er á aldrinum 18-27 ára. Félagsmálaráðuneytinu hefur borist margar ábendingar frá fólki sem finnst þetta okurlánastarfsemi.

„Það er ákveðinn misskilningur sem er í gangi um að ungt fólk og aðrir geti steypt sér í skuldir. Þú færð aldrei tíu þúsund krónur til að byrja með. Og þegar þú ert búinn að greiða það til baka geturðu fengið 20 þúsund króna lán. Þegar það hefur verið greitt geturðu fengið þrjátíu og endað í fjörutíu. Þú getur ekki fengið lán til að greiða annað lán. Viðskiptavinir Kredia geta mest skuldað fyrirtækinu fimmtíu þúsund krónur,“ segir Leifur.

Leifur segir að starfsemi Kredia sé í fullri sátt við bæði Fjármálaeftirlitið og neytendastofu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar