Háar fjárhæðir gætu sparast við að hefja endurgreiðslu Icesave-lána fyrr en árið 2016. Í athugun er að koma eigum bús Landsbankans í verð með skjótari hætti en rætt hefur verið um.
Í fyrirliggjandi samningum er gert ráð fyrir að endurgreiðslur hefjist árið 2016 en vextir greiðist frá síðasta ári.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins miðar vinnan hérlendis – við að ná nýjum og hagfelldari Icesave-samningum – einkum að því að lækka kostnað Íslands. Í ljósi þess að Bretar og Hollendingar hafa í óformlegum viðræðum haldið fast í kröfu sína um að fá höfuðstól skuldarinnar greiddan er nú horft til þess hvernig lækka megi vaxtakostnaðinn. Kemur þar tvennt til. Annars vegar að ná hagstæðari vaxtakjörum en samist hefur um og hins vegar að hefja afborganir fyrr en ráð var fyrir gert. Við það myndi höfuðstóll skuldarinnar minnka hraðar og með því sparast háar fjárhæðir.
Meðferð eigna bús Landsbanka Íslands hf. er lykilatriði í þeim efnum. Er nú rætt og skoðað hversu hratt er hægt að losa um þær án þess þó að rýra virði þeirra.
Ljóst er að nokkur misseri munu líða áður en hægt verður að koma eigunum í verð enda talið nauðsynlegt að ekki ríki réttaróvissa um búið og meðferð þess.
Lunginn af eigum bús Landsbankans eru lán til erlendra aðila. Eru þau metin traust eign enda í skilum. Að auki á búið hluti í fyrirtækjum – erlendum og innlendum.