Reykjavíkurborg deildi um 33 milljóna króna styrk milli stjórnmálaflokkanna undanfarin þrjú ár en lækkaði fjárhæðina í 29,5 milljónir á þessu ári. Samtals hafa flokkarnir því fengið um 130 milljónir frá árinu 2007. Styrkirnir jafngilda því að flokkarnir hafi á kjörtímabilinu fengið greiddar 2.000 krónur fyrir hvert atkvæði sem þeir hlutu í sveitarstjórnarkosningunum árið 2006.
Fréttablaðið segir frá þessu í dag.
Þessir styrkir eru veittir á grundvelli laga frá 2006 um fjármál stjórnmálasamtaka. Samkvæmt 5. grein þeirra er sveitarstjórnum með fleiri en 500 íbúa skylt að styrkja stjórnmálasamtök, sem hafa fengið að minnsta kosti einn mann kjörinn í sveitarstjórnina eða hlotið 5 prósent atkvæða eða meira í síðustu sveitarstjórnarkosningum.
Hverri sveitarstjórn er í sjálfsvald sett hve háar fjárhæðir eru veittar í þessa styrki. Hins vegar er skylt að deila heildarfjárhæðinni niður á flokkana í hlutfalli við atkvæðamagn þeirra.
Samkvæmt svari við fyrirspurn, sem Fréttablaðinu hefur borist frá skrifstofu borgarstjóra, hafa 33,6 milljónir króna verið settar í styrki til flokka borgarfulltrúanna hvorttveggja árið 2008 og 2009. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010 var hins vegar ákveðið að lækka styrkina um 12 prósent og greiða 29,5 milljónir króna til flokkanna í ár. Árið 2007 var fjárhæðin 32,7 milljónir. Það ár tóku gildi lögin um fjármál stjórnmálaflokka og jukust framlögin verulega í framhaldi af því en voru á bilinu 11,5-13,9 milljónir á ári frá 2003-2006.
Upphæðin skiptist eftir kjörfylgi
Í samræmi við kjörfylgi hefur Sjálfstæðisflokkurinn fengið hæstu styrkina, 42,87 prósent af heildarfjárhæðinni, samtals 55,5 milljónir króna á tímabilinu 2008-2010. Hlutur Samfylkingarinnar er 27,35 prósent, sem jafngildir 35,4 milljónum, í hlut VG koma 13,47 prósent, eða 17,4 milljónir, F-listinn 10,06 prósent, eða 13 milljónir, en Framsóknarflokkurinn 6,25 prósent eða alls 8 milljónir króna.
