Kennari í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands var á meðal þeirra stuðningsmanna Sóleyjar Tómasdóttur, sem tóku þátt í að ganga með atkvæðaseðla í forvali Vinstri grænna í heimahús. Fréttablaðið telur sig hafa staðfestar heimildir fyrir því að umræddur kennari sé Silja Bára Ómarsdóttir og að hún hafi með þeim hætti fengið nemendur sína til að taka þátt í forvalinu.
Einsog Eyjan sagði frá í gær, þá kærði Þorleifur Gunnlaugsson kosninguna í síðustu viku á þeim forsendum að stuðningsmenn Sóleyjar hefðu farið með utankjörfundarseðla frá kjörstað og fengið fólk úti í bæ til að kjósa með þeim hætti.
Stefán Pálsson, formaður kjörstjórnar, segir að það sé vissulega óleyfilegt að fylla út atkvæði fyrir aðra, en engin dæmi séu um að slíkt hafi verið gert. Hann viðurkennir að hafa sagt í hugsunarleysi að óleyfilegt væri að fara heim til kjósenda og skila atkvæðaseðlinum fyrir þá.
„Ég verð þá að biðjast innilegrar afsökunar á því ef ég hef valdið einhverjum misskilningi,“ segir Stefán við Fréttablaðið. Þetta hafi verið netspjall að nóttu til og hann hafi ekki talið sig vera að svara formlegu erindi sem formaður kjörstjórnar: „Þetta er ekki brot. Reglurnar eru mjög opnar, það er vandinn.“
Í kæru Þorleifs býðst hann til að nafngreina brotlegan stuðningsmann Sóleyjar. Einnig talar hann um kennara við Háskóla Íslands, sem hafi farið heim til nemanda með atkvæðaseðil. Blaðið hefur fengið staðfest að umræddur kennari er Silja Bára Ómarsdóttir, en hún vildi ekki tjá sig um málið í gær, eða um hvort þetta samrýmist reglum Háskólans.
Þorleifur Gunnlaugsson segir það skaðlegt fyrir flokkinn, ef litið er framhjá kosningasvindli. Málið snúist um heiðarleika í stjórnmálum. Í samtali við Eyjuna sagði hann að þótt reglurnar væru nokkuð opnar þá gengi það ekki upp að álíta að allt, sem væri ekki bannað, væri sjálfkrafa leyfilegt. Þá hefði hann sérstaklega spurt í liðinni viku hvort leyfilegt væri að fara með atkvæðaseðla úr húsi og fengið þau svör að það væri óleyfilegt. Komið hafi á daginn að mótframbjóðandi hans hafi komist upp með það.
