Kristrún svarar Indriða: Enginn fullbúinn samningur í desember 2008, aldrei lagður fyrir ráðherra
Kristrún Heimisdóttir segir að skjal frá 18. desember 2008, sem Indriði Þorláksson nefnir fullbúinn samning um Icesave, hafi aldrei verið borið undir ráðherra og því fráleitt að líta svo á að Icesave-málið hafi verið nær frágengið á þeim tíma.
Kristrún gagnrýndi fjármálaráðherra og samninganefndina undir forystu Svavars Gestssonar í grein í Fréttablaðinu á laugardaginn var. Indriði svaraði þeirri grein í Fréttablaðinu í dag og fullyrti þar að 18. desember 2008 hafi legið á borðinu fullbúin drög að lánasamningi vegna Icesave-skuldbindinganna, en þá var Baldur Guðlaugsson formaður samninganefndarinnar. Samkvæmt þeim samningi áttu vextir að vera 6,7% og taldi Indriði því að vel hefði gengið hjá nefnd Svavars, sem Indriði sat í, en þar var samið um 5,5% vexti.
Kristrún hefur ýmislegt við orð Indriða að athuga. „Ýmis skjöl af þessu tagi eru til, enda reyndu Bretar og Hollendingar margsinnis að knýja Íslendinga til að ganga að tvíhliða lánasamningum sem Íslendingar töldu óaðgengilega, og höfðu samningsskjöl til reiðu með aðstoð íslenskra lögmannsstofa. Þetta skjal sætir því engum tíðindum og var aldrei borið undir ráðherra,“ segir hún.
Þá segir hún að á þessum tíma hafi verið langt í land að samningar lægju fyrir, „enda lágmarksviðmið Íslands að ná pólitískum árangri á grundvelli ályktunar Alþingis um Brusselviðmið.“ Vísar hún þar í sameiginlegt minnisblað fjármálaráðuneytis og utanríkisráðuneytis til utanríkismálanefndar Alþingis frá 14. desember s.l. en þar stendur:
,,Af hálfu Íslands var litið svo á að með hinum sameiginlegu viðmiðum væri komin upp ný staða í samningaviðræðunum við Breta og Hollendinga og að meira tillit yrði tekið til hinna fordæmalausu aðstæðna á Íslandi en gert hafði verið fram að því, svo sem í samkomulaginu frá 11. október. Í Brussel-viðmiðunum fælist n.k. núllstilling og var megintilgangur þeirra þríþættur. Í fyrsta lagi að losa um þá stíflu sem myndast hafði við afgreiðslu efnahagsáætlunar Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, í öðru lagi að komast undan niðurstöðu gerðardómsins sem felldur var í kjölfar ECOFIN fundarins og í þriðja lagi að skapa grundvöll fyrir nýjum samningaviðræðum þar sem tekið yrði tillit til sérstaklega erfiðrar stöðu Íslands m.a. í formi hagstæðari lánakjara en þeirra sem fallist hafði verið á við Hollendinga mánuði fyrr.”
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
