Fólk - miðvikudagur - 10.2 2010 - 10:36

Nicole Eggert (38): Baywatch stjarna bætti á sig

Ameríka er ólm í raunveruleikaþætti en einn þeirra heitir Celebrity fit club og þar má fylgjast með frægum sem hafa fitnað, keppast um að missa keppina.

100409_sl_eggert38.jpg Einn áhugaverðasti keppandinn í þeirri þáttaröð sem fer í loftið vestanhafs á mánudag mun vera Nicole Eggert en hún varð fræg á sínum tíma fyrir að leika á móti Pamelu Anderson í þáttunum um Strandverðina.

Nicole þessi hefur þyngst um heil fimmtán kíló og er því harla ólík þeirri fisléttu bombu sem fólk fylgdist með á skjánum á sínum tíma. Hún virðist þó staðráðin í að léttast aftur og gekk vel að sögn framleiðenda þáttanna.

Ástæða þess að Nicole bætti svona á sig mun vera óhamingja og ofbeldi í sambandi við meðlim sveitarinnar Skid Row ásamt andláti föður hennar sem barðist í stuttann tíma við krabbamein.

Þetta hafði þannig áhrif á Nicole að hún lagðist upp í rúm og steig ekki fram nema til að fá sér að borða. „Hún varði öllum stundum í rúminu,“ segir mamma hennar í samtali við Radar en nú eru um tvö ár síðan faðir Nicole lést.

Mamma hennar bætti við, dóttur sinni til varnar, að í raun hefði Nicole kannski ekki fitnað svo mikið en það væri bara meira áberandi þar sem hún var með í Baywatch þáttunum:

„Á öllum öðrum myndi þetta ekki virka svona áberandi. Hún fitnaði ekkert svo mikið en hún lék í Baywatch og allir ætluðust til að hún myndi alltaf líta svona út. En hún er ekki átján ára lengur.“

Nú mun Nicole líta afskaplega vel út (þó hún sé ekki um 45 kíló eins og þegar hún lék í Baywatch (Nicole er 1.55) og áhorfendur þáttanna munu geta fylgst spenntir með þessari flottu konu í átaki.

eggert_bd88422275.jpg

Álfakroppurinn Nicole áður en hún fór að borða sér til huggunar.

Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.

Facebook vinir