Miðvikudagur - 10.2 2010 - 10:11 - Ummæli ()

Síðasta Harry Potter myndin: Leikmynd í smíðum

Spennan í kringum síðustu Harry Potter myndirnar magnast stöðugt en hér má sjá hluta af leikmyndinni sem verið er að setja upp í Bretlandi.

infphoto_1183447_0.jpgLokamyndin „Harry Potter And The Deathly Hallows“ verður öll tekin á þessu ári en skipt upp í tvær myndir.

Í þessari lokasögu er Harry á ferðalagi en húsið sem við sjáum á myndinni er væntanlega staður sem hann heimsækir á ferðum sínum.

Daniel Radcliff, Emma Watson og Rupert Grint hafa alist upp í heimi Harry Potter og verma fyrir vikið þrjú af fimmtán sætum yfir ríkasta fólkið í kvikmyndageiranum í Hollywood og þurfa líklegast ekki að hafa áhyggjur af peningum það sem eftir er ævinnar.

Fleiri þúsund aðdáendur um allann heim hafa vaxið úr grasi með krökkunum og nú er lokamyndanna beðið með gríðarlegri eftirvæntingu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar