Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara vegna efnahagshrunsins og þingmaður á Evrópuþinginu, segir í grein í Aftenposten og Morgunblaðinu í dag að Icesave-málið snúist þegar á öllu er á botninn hvolft um að breyta skuldum einkafyrirtækis í ríkisskuldir.
Í greininni segir hún að ríkisvaldið beri ábyrgð á að settir séu upp tryggingasjóðir innstæðueigenda, en hvergi sé í reglugerðum getið um að ríkið sjálft skuli ábyrgjast sjóðina, einsog krafist sé í tilfelli Íslands.
Í greininni gagnrýnir hún jafnframt Þórólf Matthíasson prófessor harðlega, telur hann hafa í Aftenposten 2. febrúar sleppt ýmsu og rangt farið með staðreyndir.
Þórólfur hafi um langt skeið stutt kröfur Breta og Hollendinga í Icesave og nefni ekki í greininni að Íslendingar þurfi að greiða 5,5% í vexti, en uppsafnaðir séu þeir stór hluti af vandanum.
Þá segi hann að þrotabú Landsbankans muni duga fyrir bróðurpartinum af skuldinni. Eva Joly segir þetta rangt. Óvissan um hvað fáist fyrir eignir Landsbankans sé mikil og magnist og segir Joly að mjög sennilegt sé að sala eigna bankans muni ekki hrökkva fyrir nema um 30% skuldarinnar. Þetta er hlutfall er mun lægra en fram hefur komið hjá slitastjórn Landsbankans. Joly segir að hægt sé að læra það af þessu stríði að knýja fram betra regluverk og öryggisnet af hálfu Evrópusambandsins.