Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kom heim úr fríi í gær samkvæmt heimildum Eyjunnar. Kom hún ásamt maka sínum með flugi frá Glasgow.
Líklegt er því að hún taki við stjórn landsins á ný í dag af Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra sem gegnt hefur embætti forsætisráðherra í fjarveru hennar frá því á laugardaginn.
Ríkisstjórnarfundur er áformaður á morgun, föstudag.
