Landinn ferðast nú um Ísland: 90% ferðast innanlands en færri fara til útlanda
Níu af hverjum tíu Íslendingum ferðuðust innanlands í fyrra, samkvæmt nýrri könnun MMR fyrir Ferðamálastofu, og er þetta hæsta hlutfall sem slíkar kannanir hafa sýnt á ferðum innanlands.
Að sama skapi hafa ferðalög landsmanna til útlanda dregist saman, en tveir af hverjum fimm (40%) ferðuðust bæði innanlands og utan á síðasta ári og fjögur prósent aðeins til útlanda. Þannig ferðaðist innan við helmingur landsmanna til útlanda. Átta prósent ferðuðust hins vegar ekki neitt.
Tveir af hverjum þremur (67%) fóru í þrjár eða fleiri ferðir innanlands og þrír af hverjum fjórum (74%) gistu sjö nætur eða lengur en á heildina litið gistu landsmenn að jafnaði 14,3 nætur á ferðalögum innanlands árið 2009.
Flestir ferðuðust í júlí (75%) og ágúst (66%) en fjölmargir ferðuðust hins vegar í öðrum mánuðum, ríflega helmingur (56%) í júní, fjórðungur í maí og september og fimmtungur í apríl og október.
Fjölmargir þættir höfðu áhrif á ákvarðanatöku landsmanna um ferðalög á árinu. Fjölskylda og vinir höfðu einna mest áhrif (62%), en aðrir þættir sem höfðu umtalsverð áhrif voru sérstakur viðburður (29%), tengsl eða áhugi á stað eða svæði (22%), aðgangur að sumarbústað í einkaeigu (20%) eða útivist almennt (20%).
Af þeirri afþreyingu sem greiða þarf fyrir nýttu flestir sér sund eða jarðböð (66%) en auk hennar borguðu fjölmargir sig inn á söfn og sýningar (33%), fyrir veiði (19%) og leikhús eða tónleika (18%).
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
