Nokkrir Íslendingar eiga nú í miklum ritdeilum á bandarískum spjallvef á netinu um það hvort Latibær sé handbendi djöfulsins og prediki samkynhneigð og barnaklám. Jafnframt verjast þeir ásökunum um að Ísland sé allt einn jökull og því nær óbyggilegt og gera sitt besta til að leiðrétta fólk sem þeir telja að sé illa upplýst öfgatrúarfólk í Bandaríkjunum.
Gallinn er sá að brandarinn er á kostnað Íslendinganna – þeir átta sig ekki á því að spjallvefurinn sem þeir eru að rífast á er hluti af skálduðu samfélagi, Land over Baptist kirkjunni, þar sem gert er grín að lífsviðhorfum og skoðunum öfgatrúarfólks vestanhafs. Íslendingarnir eru því að rífast við ímyndað fólk á grínvef – svona svipað og þeir væru að rífast við ritstjórn Baggalúts um að fréttirnar sem þar eru birtar séu ekki sannar.
Frá þessu er sagt á vefsíðunni Stóru bólunni í dag.
Höfundur færslunnar segir að þetta sé e.t.v. ágætt dæmi um að fólk eigi að fara varlega í að taka því sem það sér á netinu trúanlegt – og ávallt hafa gagnrýna hugsun meðferðis áður en byrjað er að tjá sig. „Ein leit að Land over baptist á Google eða Wikipedia, hefði t.d. getað sparað þessu ágæta baráttufólki fyrir land, þjóð og Latabæ ansi mikla skjáreiði,“ segir þar.
