Sigmundur Davíð vill að Jóhanna reki Anne Sibert úr peninga- stefnunefnd Seðlabankans
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vill að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, vísi Anne Sibert, hagfræðiprófessor, úr peningastefnunefnd Seðlabankans vegna álits sem hún lét í ljósi í grein í vefritið Vox.
Sigmundur Davíð fór fram á þetta við upphaf þingfundar kl. 13.30 í dag, undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir.
Í greininni, sem fjallar um Icesave-deiluna, heldur Anne Sibert því fram að Ísland geti fyllilega staðið undir skuldbindingum vegna Icesave-reikninganna, enda verði endanlegt uppgjör nálægt 15 prósentum af landsframleiðslu en ekki 50 líkt og sumir halda fram.
Eyjan sagði frá grein hennar hér.
Sigmundur Davíð taldi greinilegt að Sibert vildi að Ísland gengi að öllum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave-deilunni, en ummælin væru sérstaklega óheppileg nú þegar nýjar viðræður um Icesave væru að hefjast og tilgangur greinarinnar með öllu óljós. Hann benti á að Anne væri á launum hjá íslenskum skattgreiðendum við það að gæta hagsmuna Íslendinga og þar á meðal að verja íslensku krónuna. Ekkert verra væri fyrir íslensku krónuna en skuldsetning í erlendri mynt. Því væri eðlilegt að Anne myndi víkja úr nefndinni.
Jóhanna tók undir með Sigmundi að ummælin væru „afar óheppileg“, ef þau væru rétt eftir höfð. Hún sagðist þó ekki hafa séð greinina og vildi því ekki bregðast frekar við henni úr ræðustól Alþingis. Þá benti hún á að peningastefnunefnd og Seðlabankinn starfi sjálfstætt og ekki í hennar verkahring að víkja Sibert úr nefndinni.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
