Miðvikudagur - 17.2 2010 - 18:19 - Ummæli ()

Anne Sibert sakar Sigmund Davíð um að veitast að tjáningarfrelsi og upplýstri umræðu

annesibert.jpgAnne Sibert hagfræðiprófessor, sem situr í peningastefnunefnd Seðlabankans, segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, veitist að tjáningarfrelsinu með hörðum viðbrögðum við grein hennar um stöðuna í Icesave-deilunni.

Einsog Eyjan sagði frá í gær, vill Sigmundur Davíð að Sibert verði rekin úr peningastefnunefndinni vegna álits hennar, sem fram kemur í greininni. Á Alþingi í gær hvatti hann Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, til að vísa henni úr nefndinni.

Sibert undrast hve hörð viðbrögð greinin hefur vakið á Íslandi. Í viðtali í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins sagði hún óskiljanlegt að stjórnmálamaður skuli veitast að tjáningarfrelsinu með þessum hætti. Sagði hún að með því væri  Sigmundur Davíð að reyna að koma í veg fyrir upplýsta umræðu um efnahagslega stöðu Íslands, en hún hefði ekki gert annað en að reyna að fara yfir stöðuna á fræðilegan hátt.

„Jafnvel þó hann sé ósammála mér, þá er tjáningarfrelsið einn af hornsteinum lýðræðisins og því með öllu óskiljanlegt að hann skuli reyna að stöðva upplýsta umræðu um Icesave-málið,“ sagði Anne Sibert.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar