Hin árlegi bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda hefst í Perlunni í föstudaginn og verður opinn alla daga til 7. mars.
Í frétt frá félaginu segir að markaðurinn sé einn helsti viðburður ársins í heimi bókanna. Allt frá því á sjötta áratug síðustu aldar hafi bókaútgefendur staðið fyrir sameiginlegum markaði þar sem eldri útgáfubækur séu boðnar á góðu verði. Táknmynd og lukkudýr markaðarins hafi lengi fyrir hinn glaðlyndi bókakarl sem hattprýddur skeiði um götur og torg. Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda hafi löngum verið besti staðurinn til að hafa yfirsýn yfir allt úrval fáanlegra íslenskra bóka, en 12.000 titlar hið minnsta séu til sölu á markaðnum.
Fram kemur að á markaðnum er nú mikið úrval bóka sem komu út á síðasta ári frá öllum útgefendum, en þetta úrval hafi verð aukið til muna fyrir tveimur árum.
Þá segir að árlega komi ýmsar gersemar upp úr handröðum útgefenda, bækur sem taldar voru uppseldar fyrir löngu hafi fundist innst í geymslu eða að gamlir lagerar horfinna forlaga eru dregnir fram. Bókamarkaðurinn bjóði því ekki aðeins upp á tækifæri til að gera góð kaup og byrgja fjölskylduna upp af frábærum bókum, heldur sé hann skemmtilegur staður til að finna týndar perlur.
