Miðvikudagur - 17.2 2010 - 16:53 - Ummæli ()

Hagsmunasamtök heimilanna boða greiðsluverkfall. Fólk noti eingöngu reiðufé og greiði ekki af lánum

hagsmunasamtokheimila.jpgHagsmunasamtök heimilanna hvetja til greiðsluverkfalls frá og með föstudeginum 19. febrúar.

Með greiðsluverkfalli er fólk hvatt til þess að hætta að greiða af íbúðalánum og bílalánum og að takmarka greiðslur við greiðsluáætlanir. Þá er fólk hvatt til þess að taka fé úr bönkum og nota eftirleiðis aðeins reiðufé, en þannig hafi bankar „á meðan ekki aðgang að því fé í veltu og Seðlabankinn neyðist til að prenta seðla,“ einsog segir í leiðbeiningum samtakanna um greiðsluverkfall. Þá er fólki ráðlagt að færa innlánsreikninga til banka sem viðkomandi treystir betur.

Í greinargerð Hagsmunasamtaka heimilanna um greiðsluverkfallið segir m.a.: „Þúsundir hafa nú þegar neyðst til að hætta að greiða af íbúðalánum. Í greiðsluverkfalli stöndum við saman og segjum við lánastofnanir, hingað og ekki lengra. Við gerumst ekki galleiðuþrælar okurlánastarfsemi ykkar. Með þátttöku erum við að segja við ríkið, hættið stuðningi við okurlánastarfsemi, hættið innheimtu okurlána, stundið ábyrga efnahagsstjórn…. til tilbreytingar.“

Samtökin halda opin fund annað kvöld í Iðnó undir yfirskriftinni „Hingað og ekki lengra.“ Þar verður sérstaklega farið yfir greiðsluverkfallið undir leiðsögn formanns svonefndrar „greiðsluverkfallsstjórnar“.

Fleiri ávörp verða á fundinum. M.a. flytur Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, erindi um Lyklafrumvarpið og sérstaklega verður farið yfir myntkörfulánin.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar