Umboðsmaður Alþingis hefur að eigin frumkvæði hafið rannsókn á því hvernig lögreglan stóð að leit að fíkniefnum í Tækniskólanum í Reykjavík í vikunni sem leið.
Fram hefur komið að margir telja að lögreglan hafi gengið of hart fram við leitina og ekki virt réttindi nemenda.
Í tilkynningu frá embætti umboðsmanns Alþingis segir að lögreglunni hafi verið ritað bréf þar sem óskað er eftir upplýsingum og skýringum á málinu. Óskar umboðsmaður annars vegar eftir því að vera upplýstur um aðdraganda þess að leit var gerð í skólanum og eftir nánari upplýsingum um það hvernig sú leit fór fram, þ. á m. hvert hefði verið tilefni leitarinnar. Hins vegar óskar umboðsmaður eftir því á hvaða lagagrundvelli umrædd aðgerð byggðist á og ef hún hafi byggst á 3. mgr. 75. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, óskar hann eftir nánari rökstuðningi til þess hvernig skólastofnun af því tagi, sem var vettvangur umræddrar aðgerðar, gæti talist „[húsakynni] sem [væru] opin almenningi eða hver og einn geti átölulaust gengið um“, og þá m.a. að virtri grundvallarreglu 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs.
Bréf umboðsmanns Alþingis til lögreglunnar í heild er hér.
