Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir mikilvægt að reglur réttarríkisins séu hafðar í heiðri við endurreisn fyrirtækja. Það sé dómskerfisins að refsa mönnum hafi þeir brotið lög en ekki bankakerfisins.
Frá þessu er sagt á vefmiðlunum Vísi.
Gylfi sagði í umræðum á Alþingí í gær að bankarnir hefðu unnið úr málum manna sem ekki hefði sannast að hefðu brotið lög en það breytti því ekki að þeir hefðu kannski gengið freklega fram af þjóðinni. Súrt væri ef menn sem svo er ástatt um gætu endurreist viðskiptaveldi sín.
Haft er eftir ráðherranum að eðlilegt sé að almenningur neiti að eiga í viðskiptum við menn sem gengið hafi fram af þjóðinni. „Viðskiptaveldi er lítils virði ef enginn vill við það skipta,“ sagði hann.
Fram kemur að Magnús Orri Schram, Samfylkingunni, spurði ráðherrann út í málið á þingfundi í gær. Sagði Magnús Orri erfitt að horfa upp á fyrrverandi aðalleikendur útrásarinnar verða ráðandi í nýju íslensku viðskiptalífi. Skoðun hans væri sú að setja ætti lög um að hægt verði að ganga að öllum eignum lögbrjóta, þar með talið eignarhlutum þeirra í fyrirtækjum.
Þá segir á Vísi að Magnús Orri sitji í viðskiptanefnd þingsins sem hafi fjallað um verklagsreglur bankanna. Hafi nefndarmenn lýst þeim ógagnsæjum og ófullnægjandi.
145
98