Lögum um fjárnám verður breytt fljótlega og þá verður hægt að ljúka árangurslausu fjárnámi án þess að gerðarþoli sé viðstaddur.
Þetta sagði Ragnar Árnadóttir dómsmálaráðherra í viðtali við Bylgjuna í hádeginu.
Fréttir Stöðvar 2 í gærkvöldi um móður sem lögregla handtók og færði til fjárnámsgerðar hjá sýslumanni þótt hún væri með tvö lítil börn á öskudagsgleði hefur vakið mikla athygli og hneykslan fólks.
Dómsmálaráðherra sagði að þegar breytingar á lögum um fjárnám hafi verið gerðar þurfi ekki lengur að sækja fjárnámsþola með lögregluvaldi eins og nú tíðkast þegar viðkomandi sinnir ekki boðun sýslumanns. Hægt verði að ljúka málinu að gerðarþola fjarstöddum, en endurupptaka málsins verði leyfð geti hann síðar bent á eign upp í skuldina sem verið er að innheimta.
Ragna Árnadóttir sagði að núverandi fyrirkomulag væri óþarflega harkalegt gagnvart gerðarþolum sem ekki gætu hvort eð er bent á neinar eignir. Það væri einnig þunglamalegt og dýrt fyrir kerfið að standa í þessu.
