Leyniskjalið sem staðgengill bandaríska sendiherrans á Íslandi ritaði utanríkisráðuneytinu í Washington um Icesave-málið á Íslandi er nú aðgengilegt í heild hér á WikiLeaks-vefnum.
Greint var frá efnisatriðum málsins í frétt á Eyjunni fyrr í kvöld.
Ekkert liggur fyrir um það hvernig fréttamaður Sjónvarpsins komst yfir skjalið sem er kyrfilega merkt trúnaðarmál.
Í tíufréttum Sjónvarpsins í kvöld lét Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í ljós óánægju með að fjölmiðlar töluðu um að fulltrúar utanríkisráðuneytisins á fundinum í bandaríska sendiráðinu hefðu „grátbeðið“ um aðstoð. Um slíkt hefði ekki verið að ræða, en menn hefðu tekið mjög afdráttarlaust til orða um nauðsyn þess að Bandaríkjamenn styddu málstað Íslands.
Rætt var við Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra í fréttatímanum og kannaðist hann ekki við að íslensk stjórnvöld hefðu ákveðið að biðja Bandaríkjamenn um stuðning í Icesave-deilunni. Hann segist fyrst hafa heyrt af efni fundanna í dag.
