Dóms- og mannréttindaráðuneytið hefur opnað vefsíðu á slóðinni thjodaratkvaedi.is í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars um Icesave-lögin. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að þar séu útskýrð á hlutlausan hátt meginatriði máls sem varða atkvæðagreiðsluna, ástæður hennar og mögulegar afleiðingar.
Fram kemur að dómsmála- og mannréttindaráðuneytið fól Lagastofnun Háskóla Íslands að semja kynningarefni fyrir almenning vegna atkvæðagreiðslunnar og auk vefsíðunnar verður gefinn út bæklingur sem dreift verður um allt land síðari hluta næstu viku. Athygli ehf. sá um hönnun og tæknivinnu vegna vefjarins, sem og framsetningu efnis, bæði á vefnum og í bæklingnum.
Loks segir að vefsíðan thjodaratkvaedi.is sé ekki umræðuvettvangur en notendum hennar er vísað á ýmsa vefi stjórnmálahreyfinga, stofnana, hagsmunasamtaka og annarra sem hafa með einum eða öðrum hætti fjallað um Icesave-málið eða einstaka þætti þess.
