Föstudagur - 19.2 2010 - 07:12 - Ummæli ()

Erlendar skuldir heimilanna líklega vanmetnar. Myntkörfulánin metin á 300 milljarða

peningar-gjaldeyrir4.jpgSeðlabankinn telur að ársgamlar tölur um að heimilin skuldi 300 milljarða í erlendri mynt feli í sér nokkurt vanmat á skuldastöðunni. Skuldirnar séu líklega talsvert meiri.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Um 37 þúsund heimili tóku erlend bílalán og eru þau nema um 111 milljörðum króna samkvæmt tölum Seðlabankans, en þau gætu þó hækkað. Unnið er að nýju mati á skuldastöðunni.

Nokkur óvissa hefur skapast um hvort verðtrygging lánanna við erlent gengi standist lög eftir héraðsdóm sem féll í síðustu viku, en Hæstiréttur á eftir að fjalla um málið. Málið gæti ekki einvörðungu haft áhrif á erlend lán heimilanna. Bændur og smábátasjómenn telja að dómurinn geti líka haft áhrif á þeirra lán í erlendri mynt.

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sagði á Alþingi í gær að lántakendur gætu verið í verri stöðu staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu héraðsdóms. Hann sagði að ef Hæstiréttur staðfesti dóminn þyrfti að greiða úr málum með eðlilegum hætti og byggja á sanngjörnum sjónarmiðum.

„Þá blasir við og það er tiltekið í lögum um vexti og verðtryggingu, að miða beri við vexti sem birtir eru af Seðlabankanum og eru hagstæðustu útlánavextir bankanna á hverjum tíma,“ sagði Gylfi.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar