Þegar talin höfðu verið 2000 af um 2800 heildaratkvæðum í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kópavogi var Ármann Kr. Ólafsson bæjarfulltrúi efstur. Virðist nú næsta öruggt að hann muni velta Gunnari Birgissyni fyrrverandi bæjarstjóra úr oddvitasæti flokksins.
Nýliðinn Hildur Dungal virðist einnig örugg í öðru sæti og Gunnar Birgisson verður í því þriðja. Hann vantar meira en 200 atkvæði til að hreppa oddvitasætið.
Í fjórða sæti er Margrét Björnsdóttir, í fimmta Aðalsteinn Jónsson, í sjötta Árni Bragason og í sjöunda Karen E. Halldórsdóttir.
Tölur eru jafnóðum birtar á vef Sjálfstæðisflokksins.
