Frjálshyggjufélagið: Orðið „auðmaður“ farið að merkja sama og Gyðingur hjá nasistum
Íslenskir stjórnmálamenn sáu fljótt við fall íslensku bankanna að auðveldasta leiðin til að firra sig sjálfa ábyrgð á ástandinu væri að gera umsvifamestu athafnamenn þjóðarinnar að blóraböggli fyrir hvaðeina sem aflaga hafði farið í þjóðfélaginu. Svo langt hefur þessi viðleitni stjórnmálamanna gengið að um skeið var sem orðið „auðmaður“ hefði sömu merkingu í máli íslenskra vinstrimanna og Gyðingur hafði í munni áróðursmeistara þýska nasistaflokksins.
Þannig er komist að orði í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Frjálshyggjufélagsins á Kringlukránni í gær. Í frétt frá félaginu segir að á fjórða tug manna hafi sótt fundinn.
Í ályktuninni segir ennfremur:
Afleiðing þessa er nú orðin sú að þeir sem stundað hafa verslun og viðskipti eru miskunnarlaust rægðir af stjórnmálamönnum jafnt sem almenningi. Sér í lagi gildir þetta um þá sem versla með gjaldeyri, en ekkert bendir til þess að höft á verslun með gjaldeyri verði afnumin á næstu árum. Raunveruleg hætta er á því að áframhaldandi höft á verslun með gjaldeyri muni leiða til víðtækra verðlagshamla og fjárfestingareftirlits líkt og raunin var á haftaárunum 1931 til 1960.
Afleiðing þessa getur ekki orðið önnur en æ versnandi lífskjör og minni hagvöxtur. Einstaklingsframtakið fær ekki að njóta sín við þessar aðstæður og atvinnulíf allt er drepið í dróma. Tal stjórnvalda um nýsköpun í atvinnurekstri en innantómt raus við ríkjandi aðstæður.
Pólitísk spilling er óhjákvæmilegur fylgifiskur þess ástands sem við búum við, en höftin hafa líka afar slæm áhrif á almennt siðgæði í landinu. Fólk lætur sér það lynda að haldinn sé fjölmiðlasirkus yfirvalda vegna meintra ólögmætra gjaldeyrisviðskipta og málum stillt upp með þeim hætti að um allra alvarlegustu glæpi sé að ræða.
Við aðstæður sem þessar er þess skammt að bíða að öryggislögregla ríkisstjórnarinnar taki hús á mönnum í leit að gjaldeyri. Hér verður að spyrna við fótum. Sporin hræða því lítil skref í átt til minna frelsis eru skref í átt til ánauðar. Engar framfarir munu verða í atvinnulífi þjóðarinnar nema stjórnvöld stefni raunverulega að afnámi gjaldeyrishafta.
Á aðalfundi Frjálshyggjufélagsins var ný stjórn félagsins kjörin. Björn Jón Bragason sagnfræðingur og laganemi var endurkjörinn formaður. Aðrir í stjórninni eru:
Geir Ágústsson verkfræðingur
Gísli Jón Hjartarson útgerðastjóri
Gísli Freyr Valdórsson blaðamaður
Gunnar Dofri Ólafsson laganemi
Haraldur Pálsson hagfræðinemi
Hjalti Sigurðarson hagfræðingur
Hlynur Jónsson laganemi
Ingimar Tómas Ragnarsson menntaskólanemi
Leifur Þorbergsson hagfræðinemi
Máni Atlason laganemi
Páll Aðalsteinsson, nemi í rekstrarverkfræði
Páll Arnar Guðmundsson laganemi
Skúli Hansen laganemi
Sigurður Þór Gunnlaugsson vínfræðingur
Sævar Guðmundsson laganemi
Valþór Druzin Halldórsson forritari
Vignir Már Lýðsson hagfræðinemi
Vilhjálmur Andri Kjartansson laganemi.
Í frétt frá félaginu segir ennfremur að í upphafi aðalfundarins hafi Kjartani Magnússyni, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, verið veitt heiðursverðlaun Frjálshyggjufélagsins fyrir vel unnin störf í þágu frelsi einstaklingsins. Í rökstuðningi var meðal annars fjallað um afstöðu hans í málefnum tónlistarhússins við Austurhöfn en þar hafi hann verið eini borgarfulltrúinn sem kaus gegn framkvæmdinni.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
