Þáttaskil urðu hjá Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi í gær þegar Gunnari Birgissyni, fyrrverandi bæjarstjóra, var velt úr stóli oddvita flokksins í prófkjöri. Samstarfsmaður hans til margra ára, Ármann Kr. Ólafsson, er arftakinn í oddvitasætinu. Gunnar lenti í þriðja sæti. Hann hefur ekkert tjáð sig enn um úrslitin og ekki er ljóst hvort hann þiggur sætið.
Samtals voru 5.998 á kjörskrá og 3.337 manns kusu sem þýðir 56% kjörsókn. 140 atkvæði voru auð eða ógild. Gild atkvæði voru 3.197.
Endanleg röð efstu 7 af 12 frambjóðendum var sem hér segir.
Ármann Kr. Ólafsson með 1.677 atkvæði í 1. sæti (52,5%)
Hildur Dungal með 1.668 atkvæði í 1.-2. sæti (52,2%)
Gunnar I. Birgisson með 1.366 atkvæði í 1.-3. sæti (42,7%)
Margrét Björnsdóttir með 1.329 atkvæði í 1.-4. sæti (41,6%)
Aðalsteinn Jónsson með 1.468 atkvæði í 1.-5. sæti (45,9%)
Karen E. Halldórsdóttir með 1.625 atkvæði í 1.-6. sæti (50,8%)
Árni Bragason með 2.015 atkvæði í 1.-7. sæti (63,0%)
