Í bréfi sem Wouter Bos, fráfarandi fjármálaráðherra Hollands, lagði inn á hollenska þinginu og Fréttablaðið hefur undir höndum, segir Bos frá skilningi sínum á fundi Breta og Hollendinga með Steingrími, Sigmundi Davíð og Bjarna Benediktssyni í Haag. Þar segir Bos fjögur skilyrði hafa verið sett fyrir frekari viðræðum:
- Full endurgreiðsla lánsins.
- Sanngjarnar bætur vegna kostnaðar við lánið (vextir).
- Samstaða stjórnmálaflokkanna á Íslandi og stuðningur forsetans.
- Fundin verði einföld lausn og viðræður gangi hratt fyrir sig.
Þetta stangast á við orð Sigmundar Davíðs um að tilboð Breta og Hollendinga frá því á föstudag hafi verið viðsnúningur frá viðræðunum í Haag.
Bos segir að í viðræðum í London, 15. og 16. febrúar, hafi íslenska sendinefndin talað fyrir nýjum leiðum til að leysa Icesave-deiluna. Þær hugmyndir hafi ekki verið í samræmi við viðræður flokksformannanna í Haag.
Þá segir Bos að tilboðið frá því á föstudag hafi verið endanlegt af hálfu Breta og Hollendinga. Íslendingar leggi mesta áherslu á vexti og tilboðið sé rausnarlegt í þeim efnum. Allir vilji leysa deiluna. „Ég tel að ég hafi lagt mitt af mörkum til að það náist með þessu lokaboði.“
