Það er eitthvað er bogið við klukkuna á Íslandi. Það sér hver maður sem skoðar mynd af tímabeltunum. Landfræðilega er Ísland í heild einni klukkustund á eftir þeim opinbera tíma sem nú gildir hér á landi. Í Reykjavík er klukkan mjög nálægt því að vera landfræðilega tveimur stundum frá því sem hún er núna.
Þetta segir fólk sem stofnað hefur hóp á samskiptasíðunni Facebook sem hvetur til þess að klukkunni hér á landi verði breytt. Hópurinn tekur undir sjónarmið sem hópur sérfræðinga á geðdeild Landspítalans hefur nýlega kynnt í fjölmiðlum.
Í hópnum eru nú um 10 þúsund manns.
Í greinargerð á vefnum segir að núverandi fyrirkomulag hér á landi feli í sér þegar Íslendingar og Bretar fari á fætur á sama tíma klukkan 7, sé birtan í höfuðborginni er eins og klukkan sé 5 að nóttu. Sé tekið mark á vísindalegum rannsóknum sem gerðar hafi verið á líkamsklukku fólk megi sjá að Íslendingar lifi ekki í takt við hana. Landsmenn nýti sér þá litlu birtu sem berst á veturnar verr, þjóðin sé að vakna um miðjar nætur.
Hópurinn vill að Alþingi fjalli um málið og geri breytingar á lögum um tímareikning sem eru frá árinu 1968.
