Þriðjudagur - 23.2 2010 - 22:19 - Ummæli ()

Hagfræðingurinn John Kay: Icesave-kosningin markar þáttaskil. Nú fær almenningur að ráða

john-kay.jpgRéttlætingin fyrir ruddaskap breskra stjórnvalda í garð Íslendinga er hin sama og ruddar nota alltaf: Við gerum það af því af því getum það. Eða vegna þess að við héldum að við gætum það. Nú hefur Ísland náð yfirhöndinni að nýju. Ef þjóðaratkvæðagreiðslan 6. mars fer fram fær almenningur í fyrsta skipti tækifæri til að hafna því að hann skuli ætíð bera fjárhagslega ábyrgð á mistökum banka og bankamanna. Þá hefur leikreglunum [í fjármálaheiminum] verið breytt og þess vegna vilja Bretar og Hollendingar semja. Við ættum að skammast okkar.

Þetta segir einn þekktasti hagfræðingur heims, Bretinn John Kay, í grein sem sem birtist í fjármálablaðinu Financial Times á morgun og var rétt í þessu birt á vef blaðsins. Kay fjallar um Icesave-deiluna og rekur fyrir lesendum um hvað hún snýst og fjárhæðir sem um sé að tefla fyrir Íslendinga.

Kay segir að reglur Evrópusambandsins um innistæðutryggingar fjármálastofnana hafi fallið á fyrsta prófinu. Það sé óþolandi að ótraustir bankar skuli hafa getað boðið gráðugum fjármagnseigendum vexti langt yfir það sem tíðkast á markaðnum og samt notið opinberrar ábyrgðar.

Fjölmiðlar um allan heim beina vaxandi athygli að þjóðaratkvæðagreiðslunni hér um Icesave-málið 6. mars. Er víða lítið svo á að með því að hafna samkomulaginu við Breta og Hollendinga séu Íslendingar að senda táknræn skilaboð um heimsbyggðina alla, að ekki verði við það unað að almenningur sé látinn taka á sig byrðar af óreiðuskuldum fjármálakerfisins.

John Kay kom til Íslands haustið 2003 og flutti þá erindi á landsfundi Samfylkingarinnar. Meðal þekktra bóka eftir hann er metsöluritið The Truth About Markets.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar