eyjan.is

Þriðjudagur 23.02.2010 - 14:29 - Ummæli ()

Könnun: 80% landsmanna hafna því að Jóhannes í Bónus fái að eignast hlut í Högum

johannesibonus.jpgÁtta af hverjum tíu Íslendingum segjast vera andvígir því að Jóhannes Jónsson kaupmaður fái að kaupa allt að 10% hlut í Högum af Arion banka.

Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar MMR sem framkvæmd var 12.-17. febrúar. Heildarfjöldi svarenda var 902 einstaklingar.

Þeir sem eru mjög andvígir því að Jóhannes fái að kaupa tíu prósentin telja 59,1%  og 21% eru frekar andvígir. Aðeins 7% eru mjög hlynnt ákvörðun bankans og 12,1% frekar fylgjandi.

Spurt var: „Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ertu því að Jóhannes Jónsson (Jóhannes í Bónus), starfandi stjórnarformaður Haga, fái að kaupa allt að 10% hlut í Högum af Arion banka?“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is