Innlent - þriðjudagur - 23.2 2010 - 08:06

Þingmaður VG: Klárum ESB-umsóknarferlið og ýtum málinu svo út af borðinu í eitt skipti fyrir öll

bjornvalur1.jpgBjörn Valur Gíslason, þingmaður VG í Norðausturkjördæmi, segir í pistli á heimasíðu sinni eftir ferð um kjördæmið að mikil andstaða sé þar við aðild að Evrópusambandinu eins og ávallt hafi verið. Hann telur að flokksmenn séu sammála um að klára umsóknarferlið sem nú er hafið, en eftir það verði málinu ýtt út af borðinu í eitt skipti fyrir öll.

Björn Valur segir að það hafi verið honum og mörgum öðrum flokksmönnum þungbært að setjast í ríkisstjórn sem hafi látið það verða eitt af sínum fyrstu verkum að samþykkja umsókn um aðild að sambandinu.

„Það gerðum við þó og á þeim forsendum fórum við ríkisstjórn og verðum að sýna þann drengskap sem því fylgir og klára málið til enda. Það felast líka sóknarfæri í því máli til að fella aðildarumsóknina þegar hún verður borin undir þjóðina á sínum tíma. Þjóðin hefur líklega aldrei verið eins andvíg aðild að ESB eins og í dag og mín spá er sú að þegar fram í sækir og landið fer aftur að rísa muni sú andstaða magnast. Á ferðalagi mínu um kjördæmið fannst mér sem þetta væri sú lína sem félagar í VG vildu fara; klárum umsóknarferlið og ýtum svo málinu út af borðinu í eitt skipti fyrir öll,“ skrifar hann.

Þingmaðurinn segir að fréttir fjölmiðla um ólgu innan VG vegna ríkisstjórnarsamstarfsins komi eins og skrattinn úr sauðarleggnum og séu í algjörri andstöðu við upplifun hans úr kjördæminu.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.

Facebook vinir