Bandarískt félag, Paramount Realty Group, hefur stefnt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og konu hans Ingibjörgu Pálmadóttur fyrir dómstól í New York og krefst 52 þúsund dollara – um 6,7 milljóna króna – í skaðabætur vegna ófullnægjandi aðstæðna í lúxusíbúð þeirra við Gramercy Park North í borginni sem félagið tók á leigu í fyrra. Sérstaklega er kvartað yfir því að Jón Ásgeir og Ingibjörg hafi misboðið leigjendum með því að hafa ódýra IKEA-innréttingu í eldhúsi íbúðarinnar þegar búist hafði verið við innréttingu í háum gæðaflokki á þessum stað eins og fasteignaauglýsingar um húsnæðið lofi.
Sagt er frá þessum í ýmsum bandarískum fjölmiðlum í dag, þar á meðal New York Daily News.
Paramount Realty Group greiddi 312 þúsund dollara – 40 milljónir íslenskra króna – í ársleigu fyrir íbúð Jón Ásgeirs og Ingibjargar á 16. hæð í lúxushúsinu. Í stefnunni er einnig kvartað yfir ónýtri loftkælingu í íbúðinni, sprungu í glugga og að vantað hafi áhöld í baðherbergi.
Þá segir að gestir félagsins hafi orðið fyrir þeirri niðurlægjandi reynslu að hálfétnum kjúklingavængjum hafi verið fleygt á svalir íbúðarinnar frá þakíbúðinni á 17. hæð sem einnig er í eigu Jóns Ásgeirs og Ingibjargar.
Ekki kemur fram hvers konar félag Paramount Realty Group er né í hverju notkun íbúðarinnar fólst.
Fram kemur að Jón Ásgeir og Ingibjörg hafi reynt að selja íbúðirnar, en það hafi ekki tekist og því hafi önnur þeirra verið leigð út.
