Fimmtudagur - 25.2 2010 - 20:16 - Ummæli ()

Icesave-deilan óleyst. Þjóðarat- kvæðagreiðslan fer fram 6. mars

kosningar2007a.jpgAllt bendir til þess að ekki muni nást nýtt samkomulag í Icesave-deilunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 6. mars. Fundi Íslendinga með Bretum og Hollendingum um Icesave málið í dag lauk án niðurstöðu.

Í frétt frá fjármálaráðuneytinu í kvöld segir að kjósendur muni ganga að kjörborði 6. mars næstkomandi þar sem greidd verða atkvæði um gildi laga nr. 1/2010 um breytingu á lögum nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf. Forseti Íslands synjaði þessum lögum staðfestingar 5. janúar 2010.

„Við höfðum vonast til þess að sameiginleg niðurstaða um bætt kjör í Icesave-málinu næðist“, er haft eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra í fréttinni.. „Það hefur enn ekki tekist. Báðir aðildar lögðu fram uppbyggilegar tillögur en enn greinir þjóðirnar töluvert á. Við munum nú ræða við samningamenn okkar þegar þeir eru komnir aftur heim.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar