Meirihluti þjóðarinnar andvígur rekstri spilavítis á Íslandi. Ungir karlmenn því afar hlynntir
Meirihluti landsmanna er mótfallinn rekstri spilavíta hér á landi samkvæmt nýrri könnun um málið. Í ljós kemur að tæp 64 prósent aðspurða eru því mjög eða frekar andvíg en rúm 36 prósent fylgjandi eða mjög fylgjandi. Mikill munur var á svörum eftir aldri og er sem dæmi karlmenn undir þrítugu yfirgnæfandi fylgjandi slíkum rekstri.
Könnunina framkvæmdi markaðsfyrirtækið MMR en undanfarið hefur farið mikið fyrir fregnum af hugsanlegu spilavíti hérlendis. Hefur verið á það bent að slíkt gæti laðað að erlenda ferðamenn í meira mæli en verið hefur og komið til greina að opna slíkt spilavíti í Hilton Nordica hótelinu við Suðurlandsbraut í Reykjavík.
Sem fyrr segir er mikill munur á svörum eftir aldri. Þannig voru 46 prósent karla sem sögðust hlynntir því að rekstur spilavíta væri leyfður en eingöngu 26 prósent kvenna. Þá voru 55 prósent svarenda undir þrítugu fylgjandi því að rekstur spilavíta væri leyfður á meðan þetta sama hlutfall var 35 prósent hjá aldurshópnum 30-49 ára en eingöngu 21 prósent meðal 50 ára og eldri. Karlmenn undir þrítugu voru því mjög fylgjandi eða um 71 prósent þeirra.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
