eyjan.is

Föstudagur 26.02.2010 - 10:50 - Ummæli ()

Ísland vildi nota hagstæð lánakjör ESB sem tromp í viðræðum við Breta og Hollendinga

johannabarroso3.jpgRisalán Evrópusambandsins til Íslands var handsalað á fundi Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, með Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í Brussel í byrjun febrúar, en ekki var sagt frá því opinberlega fyrr en gær. Íslensk stjórnvöld ætluðu að bíða með tilkynninguna og freista þess að nota hin hagstæðu lánakjör ESB sem tromp í viðræðum gegn Bretum og Hollendingum, enda býður ESB mun lægri vexti en Bretar og Hollendingar höfðu gert í Icesave-samningunum. Þetta hefur Eyjan eftir traustum heimildum.

Enda þótt lánið hafi verið handsalað á fundi Jóhönnu og Barroso gat Evrópusambandið ekki formlega afgreitt lánið fyrr en í fyrradag þegar framkvæmdastjórn ESB samþykkti Ísland sem umsóknarland, enda hljóti ekki hvaða ríki sem er slík lánakjör. Rúmlega 50 milljarða lán frá ESB er á 4% föstum vöxtum, en gildandi Icesave samningur er á 5,5% föstum vöxtum. Þessi ólíku vaxtakjör átti að nota sem rök í deilunni við Breta og Hollendinga, þar sem íslensk stjórnvöld telja Icesave-vextina of háa og þjóðirnar tvær í raun hagnast á samningunum með háum vöxtum.

Íslensk stjórnvöld hafa um skeið reynt að fá hagstæðari lánakjör frá bæði Evrópusambandinu og Noregi. Eyjan greindi frá þessu daginn sem Jóhanna hitti Barroso. Ekki liggur fyrir hvort Norðmenn muni einnig lána Íslandi með sambærilegum hætti. Þá vekur athygli að íslensk stjórnvöld hafa enn ekkert sagt um risalánið frá Evrópusambandinu, jafnvel þó fréttir af því hafi lekið í fjölmiðla í gær.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is