Simon Monjack, hinn syrgjandi eiginmaður bandarísku leikkonunnar Brittany Murphy, á ekki að fá eina einustu krónu í arf frá eiginkonunni.
Hún ritaði erfðaskrá fyrir mörgum árum þar sem hún lét það koma skýrt fram að móðir hennar ætti að fá allt. Eftir að hún giftist svo Simon Monjack lét hún klausu fylgja með um að eftir sem áður ætti mamma að fá alla peningana.
Móðir Brittany, Sharon, fær semsagt hús í Hollywood hæðum sem er metið á um 920 milljónir íslenskra króna og hefur hún þegar sett húsið á sölu.
Þegar það selst ætlar hún að flytja til New York -og Simon ætlar að flytja með henni!
