Þriðjudagur - 2.3 2010 - 15:07 - Ummæli ()

Johnny Depp (47): Með hreint hár í París

Þó að Johnny okkar Depp hafi verið kosin kynþokkafyllsti maður jarðar er ekki hægt að segja að hann sé sá snyrtilegasti.

855f9f94535cf4b5_depp.jpg

Það dregur nefninlega til tíðinda þegar Johnny þvær sér um hárið og nú hefur hann gert það. Um helgina voru teknar myndir af Johnny þar sem hann stóð á svölum í Parísarborg með tandurhreint hár. 

Já, þetta gerist ekki á hverjum degi svo nú er um að gera að skoða myndina vel.

Unnendur hreins hárs geta svo glaðst enn meira þegar myndin The Tourist verður tekin til sýninga en þar leikur Johnny á móti Angelinu Jolie og ljóst er að mikil eftirvænting ríkir meðal kvikmyndaunnenda að fá að sjá þessar stjörnur í fyrsta sinn saman á hvíta tjaldinu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar