Þriðjudagur - 2.3 2010 - 21:15 - Ummæli ()

Lady Gaga lifir ekki kynlífi „Þú þarft ekki kynlíf til að vera elskuð“

Hin skrautlega Lady Gaga kom fram á samkomu í London á dögunum þar sem snyrtivöruframleiðandinn MAC hélt Viva Glam fögnuð…

…en Viva Glam er verkefni á vegum MAC sem ætlað er að styrkja alnæmisrannsóknir.

ladycacacelibate.jpg Lady Gaga talaði um kynlíf og sagði ungum aðdáendum sínum m.a. að þær þyrftu ekki að lifa kynlífi til að vera elskaðar. Hún segist jafnframt hvorki hafa tíma til að vera í sambandi og því síður hefur hún tíma fyrir kynlíf.

„Ég er einhleyp. Þegar ég er á tónleikaferðalögum hef ég engan tíma til að kynnast mönnum. Jafnvel ég get lifað lífinu án kynlífs, þú þarft ekki kynlíf til að vera elskuð,“ sagði fröken Gaga og bætti við að fullnægingar væru helsta vandamál kvenna í kynlífi.

„Kynlíf á að vera skemmtilegt, fallegt og litríkt en konur fá oft minnst af því. Við þyggjum bara. Við megum hvorki tala né syngja um kynlíf,“ sagði Gaga ósátt.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar