NBC vinna nú að gerð sjónvarpsþátta um hina seinheppnu Bridget Jones sem svo eftirminnilega var leikin af Renée Zellweger.
Þetta mun vera fylgifiskur samstarfs milli NBC og breska kvikmyndafélagsins Working Title og mikill hvalreki fyrir NBC.
Að undanförnu hafa yfirfærslur á breskum kvikmyndum og sjónvarpsefni slegið vel í gegn í Bandaríkjunum og er þá skemmst að minnast The Office sem vakti mikla lukku þar vestra.
Fyrir utan Bridget Jones framleiddu Working Title t.d. „Nanny McPhee,“ „Four Weddings and a Funeral“ og „Shaun of the Dead.“
Þeim á NBC líst svo á að þetta sé allt efni í góða sjónvarpsþætti en þar er fólk orðið vel að sér í framleiðslu og dreifingu þessháttar efnis. Til dæmis eru Law and Order þættirnir ættaðir frá NBC en þeir þættir hafa verið yfirfærðir til margra landa og endurgerðir við hæfi hverrar þjóðar fyrir sig.
