Það þarf að mynda þjóðstjórn til að leysa þau vandamál sem Íslendingar standa frammi fyrir. Þjóðina vantar leiðtoga sem geta gefið fólki raunhæfa von.
Þetta sagði Helgi Magnússon formaður Samtaka iðnaðarins í ræðu á Iðnþingi í dag.
Hann sagði að á sama tíma og stöðnun væri í atvinnulífinu og áhrifamikil stjórnmálaöfl legðust gegn uppbyggingu blómstruðu niðurrifsöfl í þjóðfélaginu. „Neikvæð umræða einkennir fjölmiðla, svonefnda bloggheima, álitsgjafa og sérfræðinga – jafnt raunverulega, tilbúna og sjálfskipaða. Það er því miður frjór jarðvegur fyrir neikvæðni, hefnigirni, reiði og hatur sem alið er á af miklum móð,“ sagði hann.
Formaður Samtaka iðnaðarins sagði að brýnasta verkefnið á Íslandi næstu 10 árin væri að skapa 35.000 ný störf. Það þyrfti að gerast hratt og örugglega því annars mundi þjóðinni ekki takast að endurreisa íslenskt efnahagslíf og íslenskt þjóðlíf.
Helgi Magnússon sagði að ástæða þess að svo illa gengi að endurreisa efnahag Íslendinga sem raun bæri vitni væri einkum sú að hér væru áhrifamikil öfl sem virtust vera á móti hagvexti og beittu afli sínu gegn endurreisn atvinnulífsins vegna þess að þau teldu að hag landsmanna yrði betur borgið í framtíðinni án hagvaxtar. Vísaði hann hér til Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.
Helgi sagði að ljóst væri að margt hefði farið úrskeiðis í aðdraganda hrunsins og flest benti til þess að ýmsir hefðu brugðist og að lögbrot hefðu verið framin. En því miður væru allt of margir tilbúnir að kveða upp áfellisdóma yfir mönnum án dóms og laga. „Við höfum talið okkur búa í réttarríki hingað til. Reynum sem lengst að halda í það. Ég tel að þar til bær yfirvöld eigi að fást við það sem kann að hafa verið gert rangt. Ég vil ekki fela alþingi götunnar það verk. Látum réttkjörnum yfirvöldum eftir að rannsaka og dæma í þessum málum. Það er í þeirra verkahring,“ sagði hann.
145
98