Fimmtudagur - 4.3 2010 - 19:41 - Ummæli ()

Forystumenn Sjálfstæðisflokksins hvetja kjósendur til að fjölmenna á kjörstað og hafna Icesave-lögum

valholl_040310-032.jpgBjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði á fjölmennum fundi trúnaðarmanna flokksins í Valhöll í dag að hann efaðist um að í nokkru öðru lýðræðisríki en Íslandi væri talað af annarri eins léttúð af ríkisstjórn um jafnt mikilvægt mál og fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu lýðveldissögunnar. Hann hvatti til þess að kjósendur fjölmenntu á kjörstað á laugardaginn og höfnuðu Icesave-lögunum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sjálfstæðisflokksins.

Fram kemur að í fjórða hundrað manns mættu á fund formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í dag.

Trúnaðarmenn um land allt voru boðaðir á fund um þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave þar sem Bjarni Benediktsson hélt ræðu og benti m.a. á að lítið væri reynt að gera úr mikilvægi þessarar fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi. Í máli formannsins kom fram að hann efaðist um að í nokkru öðru lýðræðisríki væri talað af annarri eins léttúð af ríkisstjórn um jafn mikilvægt mál.

Bjarni og varaformaður flokksins, Þorgerður Katrín Gunnardóttir, hvöttu Íslendinga til nota þetta einstaka tækifæri og leggja flokkspólitík til hliðar og sýna samstöðu. Bjarni Benediktsson sagði að brýnt væri að íslenska þjóðin sýndi í verki að hún léti ekki kúga sig. Skilaboð formanns voru skýr: „Mætum öll á kjörstað og kjósum NEI!“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar