Þessi skrítna sjón blasti við ökumönnum sem áttu leið um þýska bæinn Krefeld í vesturhluta landsins á sunnudag.

Myndina tók bílstjóri nokkur sem leist ekkert á blikuna og vildi gera lögreglu viðvart. Lögregla þar í bæ leitar nú að fólkinu enda mun slíkt athæfi vera með öllu bannað.
Athöfnin átti sér stað á sunnudaginn við kvöldmatarleytið. Sjónarvottar segja að fólkið hafi skemmt sér í a.m.k 10 mínútur.
Leigubílstjóri sagði í samtali við The Sun að hann hafi næstum því lent í árekstri „Þetta er ekki eitthvað sem þú sérð daglega úti á miðri götu.“
