Tiger Woods tókst ætlunarverk sitt. Elin Nordegren ætlar að flytja aftur til hans eftir þriggja mánaða aðskilnað.

Þetta er mikill áfangi í hjónabandi sem virtist að hruni komið eftir að upp komst um hrikalegt framhjáhald Tigers þar sem fleiri en 14 konur komu við sögu.
En eftir að Elin fór með Tiger og börnum þeirra tveimur í ferðalag í síðustu viku hefur Elin fallist á að flytja aftur heim.
Hún hefur leigt sér hús skammt frá sínu gamla heimili frá því upp komst um karlinn.
Elin var hinsvegar heima með Tiger í gær og sjónarvottur segir að hann hafi kysst hana þrisvar sinnum á kinnina og að þau hafi faðmast.
Tiger Woods fór í gegnum langa og stranga meðferð við kynlífsfíkn og telur sig nú betri mann en áður. Elin flaug til hans til að taka þátt í meðferðinni en hans bíður nú framhaldsmeðferð í Arizona.
Kylfingurinn ætlar greinilega ekki að klikka aftur.
