Föstudagur - 5.3 2010 - 19:31 - Ummæli ()

Stofnfjáreigendur BYRS veittu sjálfum sér sextán milljarða lán án ábyrgða. Meirihluti afskrifaður

1487812985bogart-2004-kaupmannahofn-101.jpgStórir stofnfjáreigendur BYRS sparisjóðs veittu sjálfum sér sextán milljarða króna lán án ábyrgða og er nú svo komið að sparisjóðurinn þarf að afskrifa stóran hluta þess fjár. Í stöku tilvikum hafa stofnfjáreigendurnir gerst svo ósvífnir að greiða ekki eina einustu krónu til baka. Skaðabótamál er ekki útilokað.

RÚV greindri frá þessu en fréttastofa þeirra hefur hluta lánabókar BYRS undir höndum. Þaðan koma upplýsingarnar um lán stofnfjáreigendanna til sjálfra sín en meðal þeirra sem þar koma við sögu eru Þorsteinn M. Jónsson, gjarnan kenndur við Vífilfell, Hannes Smárason og Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrum stjórnarformaður sjóðsins.

Þorsteinn gosdrykkjafrömuður skuldar samkvæmt bókum BYRS tæpa fimm milljarða króna og er einn þeirra sem ekki hefur greitt krónu til baka af láninu hingað til. Þorsteinn átti persónulega tveggja prósenta hlut í sparisjóðnum um tíma. Þarf að afskrifa hverja krónu af láninu til hans.

Stjórnarformaðurinn skuldar minna eða rúma þrjá milljarða króna en hann átti sjálfur sex prósenta hlut í BYR. Telja fróðir innan bankans að afskrifa þurfi stóran hluta þessa fjár áður en yfir lýkur. Þá kemur Hannes Smárason hér við sögu sem víðar en félög skráð á hans nafn skula BYR um milljarð króna. Öll sú upphæð er talin töpuð að fullu.

Félög að hluta eða fullu í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar skulda BYR sjö milljarða og er það ennfremur talið tapað fé að öllu leyti.

Sú upphæð sem þarf líklega að afskrifa í heildina, 14 milljarðar, er sú sama og forsvarsmenn sjóðsins ákváðu að greiða eigendur í arð í byrjun árs 2008.

*Mynd: Jón Þorsteinn Jónsson


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar