Vanessa Paradis, eiginkona kyntáknsins Johnny Depp til tólf ára, hefur að sögn New York Post haft áhyggjur af samstarfi hans við Angelinu Jolie.
Eins og flestum er kunnugt á Angelina að hafa ’stolið’ tveimur mönnum frá öðrum leikkonum en þær eru Laura Dern og Jennifer Aniston.
Brad Pitt og Angelina Jolie byrjuðu jú saman eftir að hafa leikið á móti hvort öðru í myndinni Mr & Mrs Smith en mörgum árum áður hafði Angelina krækt í Billy-Bob Thornton sem þá var í sambandi við Lauru Dern.
Nú leika þau Jolie og Depp saman í mynd sem ber heitið The Tourist. Þar leikur Angelina leynilögreglu sem dregur túrista á tálar og taka þau víst eina heita kynlífssenu saman í sturtunni.
Vanessa Paradis var víst ekki par hrifin þegar hún frétti af þessu og bað eiginmanninn um að bakka út úr verkefninu. Hann hefur að sögn heimildarmanna NYP lagt sig fram um að reyna að losna en ekki tekist það.
Til stóð að reyna jafnvel að skipta honum út fyrir núverandi eiginmann Angelinu, Brad Pitt.
