Heidi Montag hefur komist í fréttir fyrir sjúklegan áhuga sinn á fegrunaraðgerðum en hún fór í einar 10 aðgerðir á einum degi í fyrra.
![]()

Nú langar hana í stærri brjóst en læknirinn hennar segist ekki vera til í meira svo hún þarf að fletta í gegnum símaskrána.
Dr. Frank Ryan segir hana ekki þurfa meira: „Það er ekkert meira hægt að gera! Ég sagði henni að hún væri bara orðin klár, þetta er komið!“
Skoðanakannanir slúðurvefja hafa leitt í ljós að flestir eru hrifnari af útliti Heidi áður en hún lagðist undir hnífinn. En það stoppar hana ekki í að vilja meira og Dr. Ryan segir stjörnurnar oft breglast í viðhorfum sínum til þeirra lækna sem framkvæma aðgerðir sem þessar. Hann segir að stjörnurnar verði ágengar á læknana og vilji fá að eiga þá út af fyrir sig.
Samkeppnin hafi þessi áhrif.
